Fréttir
09.09.09
Opnun nýrrar heimasíðu
Opnun nýrrar...

Þó ástandið í Íslensku samfélagi sé ekki upp á marga fiska eins og er og haustið leggist mis vel í fólk þá höldum við hjá Ísbú ótrauð áfram og trúum því að við vinnum okkur út úr vandamálunum. Okkar innlegg í baráttuna er að bjóða góða vöru og þjónustu á sanngjörnu verði.

Þann 02.09.09 opnaði Ísbú nýja heimasíðu. Þessi heimasíða er unnin í samvinnu við Allra Átta og hefur Sveinn Thorarensen borið hita og þunga þessa verkefnis fyrir hönd Allra Átta. Hjá Ísbú erum við mjög ánægð með heimasíðuna eins og hún er nú og erum við mjög ánægð með þá þjónustu sem við höfum fengið frá Sveini og félögum hjá Allra Átta. Bæði hafa faglegar áherslur ásamt íslensku og ensku prófarkalestur verið frábær. Við getum því ekki annað en glaðst yfir nýrri heimasíðu Ísbús og þökkum Allra Átta fyrir þeirra vinnu, til að gera þetta þannig úr garði að til sóma er.

Með þessari heimasíðu vonumst við til þess að ná til fleiri viðskiptavina okkar og kynnt starfsemi okkar betur. Eins og sést á heimasíðunni þá bjóðum við upp á mjög fjölbreytta þjónustu. Þjónusta okkar er einstaklingsbundin og er það okkar markmið að geta uppfyllt óskir sem flestra þeirra sem til okkar leita. Með starfsemi dótturfyrirtækis okkar Hongfei Trade Ltd. í Kína opnast ýmsar leiðir og oft er hægt að leysa málin með einu símtali.

Við gerum tilboð í verkefni bæði stór og smá. Hafið því endilega samband ef þið eruð að spá í eihnverjar framkvæmdir. Við getum útvegað efnið á góðu verði og einnig erum við í samvinnu við iðnaðarmenn sem klára uppsetningu og frágang.

Gerum tilboð í heilan verk-pakka ef óskað er.

Með fyrirfram þökk
Starfsfólk Ísbús Alþjóðaviðskipta
isbu@isbutrade.com
S: 562 9018

fimmtudagur 9 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Til viðskiptavina...
Nú er frábært sumar að syngja sitt síðasta.Við viljum...
Opnun nýrrar...
Þó ástandið í Íslensku samfélagi sé ekki upp...
Bátur og búnaður...
Þá er búið að prufa bát og mótor. Góð...

Samstarfsaðilar

Hongfei Trade Co. Ltd.
Heildsölufyrirtæki í Kína.