Ráðgjöf í fiskvinnslu og útgerð.Við hjá ÍsBú höfum um langa hríð veitt ráðgjöf í fiskvinnslu og útgerð. Fyrsta stóra verkefni okkar var í Chile á árunum 1988 – 1990, en þar var unnið bæði til sjós og lands. Við veittum einnig ráðgjöf varðandi fiskeldi, markaðsmál o.fl. Einnig má nefna ráðgjafastarfsemi í Portúgal, á Grænlandi og víðar. Síðast en ekki síst má nefna, að við höfum að sjálfsögðu einnig veitt ráðgjöf og aðra þjónustu við útgerðarfyrirtæki á Íslandi.
|


