Spurt og svarað

Ísbú er með viðskipti víða um heim, og til að auka aðgengi viðskiptavina okkar að upplýsingum um þjónustu og vörurnar sem við bjóðum þá höfum við safnað saman nokkrum helstu fyrirspurnum sem upp kunna að koma. Ef þið finnið ekki svör við ykkar spurningum hér, vinsamlega hafið samband.





Er ÍsBú með verslun?

Nei, við erum ekki með verslun í dag. Við erum með skrifustofu á Síðumúla 31, 108 Reykjavík þar er hægt að sjá sýnahorn af nokkrum þeirra vöruflokka sem við verslum með.

Hvernig á að versla við ÍsBú?

Það er hægt að panta vörur með því að senda okkur tölvupóst á isbu@isbutrade.com eða hringja í síma 5629018, eða koma á skrifstofu okkar í Síðumúla 31. 108 Reykjavík.

Hvernig á að borga fyrir vörurnar?

Fyrir vörur sem eru á lager, biðjum við um staðgreiðslu. Fyrir sérpantaðar vörur,  biðjum við um 50% greiðslu við staðsfestingu og 50% greiðslu við afhendingu, eða 100% bankaábyrgð.

Hver er afgreiðslutíminn á sérpantaðri vöru?

Sérpantaðar vörur eru afgreiddar á 6-12 vikum eftir að greiðsla hefur verið staðfest.

Er hægt að panta sérmerktar vörur frá ÍsBú?

Það er hægt að panta vörur með sérmerkingu, allt eftir óskum kaupenda.

fimmtudagur 9 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Til viðskiptavina...
Nú er frábært sumar að syngja sitt síðasta.Við viljum...
Opnun nýrrar...
Þó ástandið í Íslensku samfélagi sé ekki upp...
Bátur og búnaður...
Þá er búið að prufa bát og mótor. Góð...

Samstarfsaðilar

Hongfei Trade Co. Ltd.
Heildsölufyrirtæki í Kína.